Ég er búin að finna fyrir mikilli pressu frá ákveðnum aðila að halda þessu bloggi áfram, hóst*mamma*hóst!
Margt og mikið búið að gerast. Skólinn alveg á milljón að demba á okkur verkefnum fyrir haustfrí. Haustfríið er í næstu viku hjá mér, veit ekkert hvað ég á að gera af mér þá. Það er alveg væri alveg tilvalið að fá heimsókn á þeim tíma
Að vísu verður innrás frá Íslandi þegar fríinu mínu lýkur. Mamma og pabbi ætla að koma 19.okt og foreldrar Þráins, Anna Sif og Elena Margrét koma 20.okt. Það verður örugglega rosa stuð þá. Búið að plana verslunarferðir, átveislur og ferð í Lalandia.
Ég er alltaf á fullu í ræktinni og fer ca 3-4 sinnum í viku. Hef að vísu ekki getað það undanfarnar 2 vikur því hnéð er búið að vera að pirra mig síðan ég fór í spinning fyrir tveim vikum. En ég reyni nú samt að fara og æfi þá aðallega bara eftir búk. Með því áframhaldi þá verð ég mega mössuð að ofan en eins og ræfill að neðan, smekklegt!
Ég er ennþá alltaf að passa. Sæki Völu og Tomma á leikskólann og er með þau fram að kvöldmat tvisvar í viku allavega. Þau eru svo miklar dúllur. Svo var ég að byrja að vinna í síðustu viku við skúringar líka. Var öll kvöld í síðustu viku en ætla að reyna að fá að vera 2-3 kvöld í viku. Fínt að fá smá aukapening.
Við Þráinn erum búin að vera að gæla við það að flytja í aðra íbúð hérna í köben. Er alveg að fá grænar bólur á að búa hérna á kollegiinu. En þar sem við erum svo nísk og tímum ekki að borga mikið hærri leigu að þá ætlum við að reyna að sætta okkur við þessa holu í 2-3 ár í viðbót. En í staðinn ætlum við að fara að kaupa okkur falleg húsgögn smám saman sem við myndum taka með okkur þegar við flytjum heim
Reyna að gera þetta meira kósý hérna og reyna líka að spara pening svo maður geti komið sér fyrir á Íslandi þegar kemur að því. Ætlum að vísu að athuga hvort við getum fengið örlítið stærri íbúð hérna á kollegiinu, þetta er farið að verða soldið þröngt, 36 fermetrar er ekkert svaka mikið skal ég segja ykkur. Maður heldur alltaf áfram að sanka að sér drasli og vill ekki að henda neinu.
Þráinn er alltaf að vinna bara á sinni stofu. Þau voru að flytja í nýtt húsnæði á Nörrebro og er því orðið aðeins rýmra um þau, þetta var soldið þröngt þarna í kjallaranum hjá eigendum stofunnar. Hann er mjög sáttur þarna og ætlar sér að vera þarna þangað til við flytjum heim, sem er ca í byrjun árs 2010 ef allt gengur upp hjá mér.
Man ekki eftir neinu meiru. Ef ég á að halda þessu bloggi áfram að þá vil ég fá að vita hverjir eru að lesa svo endilega kommentið. Nenni ekki að skrifa bara fyrir mömmu, get alveg hringt í hana og sagt henni fréttir.
Þráinn uppvaskari biður örugglega að heilsa.
Kveðja Maríanna